26.04.1988
Neðri deild: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6815 í B-deild Alþingistíðinda. (4743)
202. mál, Háskólinn á Akureyri
Frsm. menntmn. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Menntmn. hefur rætt efni frv. til laga um Háskólann á Akureyri og mælir einróma með því að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Ed. Tveir nefndarmanna, Ragnhildur Helgadóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir, skrifa undir með fyrirvara.