26.04.1988
Neðri deild: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6861 í B-deild Alþingistíðinda. (4776)
301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Frsm. meiri hl. félmn. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Aðeins vegna fyrirspurnar sem kom fram áðan frá 6. þm. Norðurl. e. varðandi meðferð þessa máls að því er varðar húsnæðismálastjórn vil ég að það komi fram, sem raunar kemur fram í nál., að húsnæðismálastjórn sendi ekki umsögn um frv. og eftir eftirgrennslan um þetta atriði, sem er óvenjuleg, var formanni nefndarinnar skýrt frá því að það hefði ekki verið samstaða um að senda þessa umsögn eins og um var beðið, en nánari skýringar hef ég ekki á því. Ég tek undir að það er óvenjulegt, enda kemur það fram í nál. sjálfu.
Ég get bætt því við að okkur þótti nefndarmönnum almennt að umsagnir bærust of fáar frá ýmsum mikilvægum aðilum sem fjalla um húsnæðismálin. Þar á ég við aðila vinnumarkaðarins eins og atvinnurekendur og fulltrúa lífeyrissjóða sem þetta mál snertir mjög mikið.
Ég sé enga ástæðu til að ræða þetta mál efnislega. Ég vona að það sem að er stefnt í þessu miðað við þá ákvörðun og það samkomulag sem formenn stjórnarflokkanna gerðu nái fram að ganga og m.a. er gert ráð fyrir þar að sveitarfélög sem hafa bága aðstöðu fái aðstoð í þrjú ár, 110 millj. kr.