27.04.1988
Neðri deild: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6878 í B-deild Alþingistíðinda. (4810)
301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Borgarafl. hefur flutt heildstæðar tillögur um Húsnæðisstofnun ríkisins og húsbanka. Í þessum tillögum er gripið á öllu vandamálinu í heild, en þær tillögur sem hér hafa verið fluttar eru aðeins smáplástrar. Ég vil ekki leggja stein í götu þessa frv. og greiði því ekki atkvæði.