09.11.1987
Sameinað þing: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (495)
76. mál, skógrækt á Fljótsdalshéraði
Flm. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. 7. þm. Norðurl. e. fyrir góðar undirtektir við till. sem hér er flutt. Ég tek undir það, sem reyndar hefur þegar komið fram hjá hv. 2. þm. Austurl., að að sjálfsögðu er þörfin víðar fyrir hendi. Þó að við flytjum till. sem aðeins tekur til Fljótsdalshéraðs vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem þar eru um þessar mundir og þeirrar forsögu sem er í þessu máli er áreiðanlega þörf víðar að rækta skóg og sem betur fer eru skilyrði víðar á landinu til þess og þessi skógrækt bætir landið mjög.
Ég legg megináherslu í mínu máli á að hér er ekki um neina bjartsýni að ræða. Árangurinn hefur þegar sýnt sig austur á Fljótsdalshéraði og það eru einmitt rök til þess að þar séu höfuðstöðvar Skógræktar ríkisins að þar sjá menn með eigin augum árangurinn af þessu starfi síðustu áratugina og þar er svo sannarlega að finna lundi nýrra skóga þó að þeir lundir mættu vera enn þá fleiri.