29.04.1988
Efri deild: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7038 í B-deild Alþingistíðinda. (4998)

445. mál, eiturefni og hættuleg efni

Frsm. heilbr.- og trn. (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. hefur rætt frv. um eiturefni og hættuleg efni og fékk nefndin Ingólf J. Petersen, deildarstjóra lyfjamáladeildar heilbr.- og trmrn., til viðræðu um málið.

Nefndin taldi að lokinni athugun rétt að mæla með samþykkt frv. eins og það liggur fyrir.