29.04.1988
Efri deild: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7039 í B-deild Alþingistíðinda. (5000)

116. mál, læknalög

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til læknalaga á þskj. 964 sem er 116. mál Nd.

Á síðasta Alþingi var lagt fram frv. til nýrra læknalaga. Frv. var að mestu leyti samhljóða tillögum stjórnskipaðrar nefndar sem fékk það hlutverk að endurskoða gildandi læknalög nr. 80/1969, með síðari breytingum, en lögin eru að stofni til frá 1932.

Frv. fékk ítarlega umfjöllun í heilbr.- og trn. Ed. þá og voru gerðar á því nokkrar breytingar í samráði við ráðuneytið, Læknafélag Íslands og læknadeild Háskóla Íslands. Var frv. þannig búið lagt fyrir Nd. rétt fyrir þinglok en því miður vannst ekki tími til þess að ræða frv. í deildinni.

Frv. er því lagt fram að nýju á þessu þingi að höfðu samráði við áðurgreinda aðila með smávægilegum breytingum frá því sem það kom til Ed. að fengnum tillögum landlæknis. Um er að ræða breytingar er varða síðustu málsgr. 2. gr. þar sem láðist að geta landlæknis sem matsaðila og í 19. gr. þar sem hnykkt er á eftirlitsskyldu landlæknis með ávísun lækna á ávana- og fíknilyf. Að öðru leyti er frv. óbreytt frá því sem það var afgreitt frá Ed. á síðasta þingi rétt fyrir þingslit.

Í nefnd þeirri sem falið var að gera tillögur að nýjum læknalögum áttu sæti Ólafur Ólafsson landlæknir, sem jafnframt var formaður nefndarinnar, Ingimar Sigurðsson, lögfræðingur í heilbr.- og trmrn., Ólafur Bjarnason prófessor, sem tilnefndur var af læknadeild Háskóla Íslands, María Pétursdóttir skólastjóri, sem tilnefnd var af samtökum heilbrigðisstétta, og Guðmundur Oddsson læknir, sem tilnefndur var af Læknafélagi Íslands.

Við endurskoðun laganna hugaði nefndin sérstaklega að eftirfarandi atriðum:

1. Reynslunni af framkvæmd gildandi læknalaga sem að stofni til eru frá 1932 eins og áður segir og hafa lítið breyst frá þeim tíma.

2. Áhrifum frá tilkomu annarra heilbrigðisstétta á framkvæmd læknalaga, en nú njóta á milli 20 og 30 heilbrigðisstéttir lögverndunar en þær voru sárafáar árið 1932.

3. Breytingum á læknalögum annarra Norðurlanda, en Ísland hefur frá því árið 1979 verið aðili að norrænum samningi um sameiginleg starfsréttindi lækna á Norðurlöndum þannig að löggjöf einstakra Norðurlanda hefur bein áhrif á framkvæmd þess samnings.

Nefndin lauk störfum í byrjun árs 1983 er hún lagði fyrir ráðuneytið tillögur í búningi lagafrv. Náði nefndin samstöðu um flest efnisatriði og byggði frv. sem lagt var fram í fyrra á þeim atriðum sem ekki var ágreiningur um, með örfáum undantekningum.

Læknafélag Íslands, samtök heilbrigðisstétta og læknadeild Háskóla Íslands fjölluðu um frv. á meðan það var í smíðum og kom fram stuðningur við það og ábendingar sem margar voru teknar inn í tillögur nefndarinnar.

Frv. fjallar um réttindi og skyldur lækna og má í stuttu máli segja að eftirtaldir þættir lýsi inntakinu best:

1. Réttindi lækna sem skiptast í réttinn til þess að stunda almennar lækningar, til þess að nota aðstoðarfólk, til þess að skorast undan að framkvæma aðgerðir sem ekki eru unnar í lækningaskyni og réttinn til þess að ávísa lyfjum.

2. Skyldur lækna sem eru fólgnar í upplýsingaskyldu gagnvart sjúklingi eða aðstandendum og greina frá undantekningum frá reglunni um upplýsingaskyldu. Ábyrgð læknis vegna réttar sjúklings til þess að skorast undan aðgerð og skyldu læknis til hjálpar, þagnarskyldu, ábyrgð læknis vegna mistaka eða vanrækslu í starfi.

Helstu nýmæli frv. eins og það liggur fyrir hér eru:

1. Nýskipan mála við mat á lækningaleyfum.

2. Skýrari ákvæði um mat á menntun og um kröfur sé menntun fengin erlendis.

3. Starfi læknanemi sem læknir, þ.e. með tímabundið lækningaleyfi, skal hann starfa með fullgildum lækni.

4. Skýrari ákvæði eru um réttindi lækna og í hverju þau skuli fólgin, sbr. það sem ég hef sagt hér á undan.

5. Hnitmiðaðri ákvæði eru um skyldur lækna og þeim deilt niður eftir viðfangsefnum. Meðal nýmæla er ótvíræð tilkynningaskylda læknis til landlæknis verði hann var við mistök og eða vanrækslu sem rekja má til starfa heilbrigðisstétta.

6. Miklu ítarlegri ákvæði eru um þagnarskyldu.

7. Önnur skilgreining er á hugtakinu „skottulækningar“, þ.e. að það nái aldrei til lækna.

8. Lækni er óheimilt að leggja nafn sitt við lækningastarfsemi nema hún fari að fullu fram á hans ábyrgð, samkvæmt ráðleggingum hans og undir eftirliti hans.

9. Lækni er óheimilt að reka sjálfstæða lækningastarfsemi eftir 75 ára aldur nema að fengnu leyfi ráðherra. Þetta ógildir ekki lækningaleyfið sem slíkt.

10. Hægt er að svipta lækni lækningaleyfi tímabundið en skv. gildandi lögum er einungis heimilt að beita sviptingu að fullu.

11. Frv. gerir ráð fyrir að læknalög taki svo til eingöngu til lækna en ekki annarra heilbrigðisstétta nema þar sem ákvæði hljóta samkvæmt eðli starfanna að vera þau sömu. Í dag taka læknalög að meira eða minna leyti til allra heilbrigðisstétta.

12. Þáttur lækna Læknafélags Íslands, þ.e. afskiptaréttur af starfsemi lækna og skipulagningu starfsins, er tryggður, en í gildandi lögum er hann enginn.

Auk þessa, sem ég hef áður talið upp, eru ákvæði læknalaga færð í nútímalegra horf og til samræmis við önnur lög sem sett hafa verið á undanförnum árum á sviði heilbrigðismála. Má þar nefna sérstaklega lög um heilbrigðisþjónustu nr. 59 frá 1983.

Ég sé ekki ástæðu til að tíunda frekar efnisatriði frv. hér heldur vísa til ítarlegrar grg. með frv. Þar er m.a. fjallað um lagasetningu um lækna, réttindi og skyldur lækna og helstu nýmæti frv. eins og grg. birtist með frv. sem lagt var fram í fyrra.

Í Nd. voru gerðar nokkrar breytingar á frv. Má kannski segja að sumar þeirra hafi nánast verið orðalagsbreytingar þar sem tillögur frá læknadeild Háskóla Íslands eru skilgreindar nokkuð öðruvísi en var í frv. og þar sem kveðið er einnig á um það, eins og segir í 4. gr. frv., að ef nauðsyn krefur má ráðherra eftir meðmælum landlæknis fela læknanemum að gegna tilgreindum læknisstörfum um stundarsakir o.s.frv. Þar hefur ákvæðunum um læknanema verið breytt í „læknakandídötum eða læknanemum sem lokið hafa 4. árs námi“.

Þá var gerð sjálfsögð breyting sem varðaði gildistöku laganna þar sem ákvæði frv. kváðu á um gildistöku um sl. áramót en brtt. sem samþykkt var í Nd. gerir ráð fyrir að lögin öðlist gildi 1. júlí nk.

Þetta voru þær breytingar sem gerðar voru á frv. í Nd. Að öðru leyti var full samstaða um málið. Ég minni á að frv. var til meðhöndlunar á síðasta þingi í Ed. og hlaut þá einnig fullnaðarafgreiðslu en ekki tókst að koma því í gegnum Nd.

Herra forseti. Ég legg því á það áherslu að frv. þetta nái fram að ganga á yfirstandandi þingi, enda samdóma álit landlæknis, Læknafélags Íslands og læknadeildar Háskóla Íslands að nauðsyn endurskoðunar læknalaga sé brýn. Jafnframt ítreka ég að náðst hefur samstaða með þessum aðilum og ráðuneytinu um frv. eins og það kemur hér fram.

Ég vona því að til efnislegs ágreinings þurfi ekki að koma og ætti því frv. nú að geta fengið tiltölulega hraða afgreiðslu í þessari hv. deild þó að ég viðurkenni að auðvitað sé tíminn orðinn mjög naumur.

Herra forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. heilbr.- og trn.