30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7107 í B-deild Alþingistíðinda. (5114)
133. mál, samræming áætlana á sviði samgöngumála og mannvirkjagerðar
Pálmi Jónsson:
Virðulegi forseti. Ég hef síst á móti þeirri afgreiðslu sem hér er lögð til af hv. atvmn., en ég beini því til hæstv. forseta að mér sýnist ástæða til að gætt sé meira samræmis í meðferð Alþingis á málum af þessu tagi og samræmingar, þ.e. að um mál af þessu tagi öll er fjallað á öðrum vettvangi, í fjvn., og að till. eins og þessi sem hér er til afgreiðslu og margar eða ýmsar tillögur sem hér hafa komið fram um t.d. samgöngumál og vísað er af hv. Alþingi ýmist til atvmn. eða til allshn. eiga allar heima í hv. fjvn. Þar er fjallað um öll þessi mál á öðrum vettvangi, bæði um mannvirkjagerð eins og fjallað er um í þessari till., samgöngumál, samgönguáætlanir, vegáætlun, flugmálaáætlun, hafnagerð o.s.frv. Öll þessi mál eiga því heima hjá þeirri nefnd og mér sýnist full ástæða til að beina því til hæstv. forseta, sem væntanlega verður þó ekki áhrifaríkt það sem eftir lifir þessa þings, að taka slík mál til betri samræmingar í störfum þingsins en gert hefur verið að þessu sinni.