30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7115 í B-deild Alþingistíðinda. (5123)

Vinnubrögð og fundahald

Forseti (Guðrún Helgadóttir):

Að þessu gefna tilefni vill forseti upplýsa að þingið sjálft hefur sent mál til þeirra nefnda sem um það hafa fjallað og því verður að sjálfsögðu ekki breytt. Hitt er sjálfsagt að taka upp á fundum forseta að hert verði eftirlit með því að mál fari til réttra nefnda. Ég tel að sú gagnrýni geti vel verið rétt, að þess sé ekki alltaf gætt sem skyldi.