30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7155 í B-deild Alþingistíðinda. (5168)
450. mál, kynbótastöð fyrir eldislax
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Sú till. til þál. sem hér liggur fyrir um kynbótastöð fyrir laxeldi er ein af þeim tillögum sem hér hafa verið ræddar um þennan málaflokk og er að sjálfsögðu mjög góð. Laxeldi hefur orðið vaxandi atvinnugrein hér upp á síðkastið og því mjög nauðsynlegt að unnið sé að þessum málum. Ég tek undir það sem hefur verið sagt hér um þessi mál. Á því er ekki nokkur vafi að þetta er mikill vaxtarbroddur í íslenskum atvinnurekstri. Mig minnir að þegar Kollafjarðarstöðin var sett á laggirnar á sinni tíð hafi það í raun verið ætlunin að þessi þáttur m.a. færi fram þar. Þær hugmyndir voru e.t.v. þá uppi. Það er því ekki ólíklegt að það mætti koma þessum þætti fyrir þar því að það er mikilvægt að gerðar séu kynbætur á eldislaxi. En ég vil líka varpa því fram hér að það er meira en eldislax sem þyrfti að huga að. Það er okkar ágæti silungur sem þyrfti að gera kynbætur á. Ekki væri síður þörf á því.
Þessi mál verða tæplega fullrædd hér, en það má líka varpa því fram í þessu sambandi, þegar maður lítur til þess að nú hafa verið lagðar gífurlegar upphæðir í fjárfestingu í laxeldi, hvort þær stöðvar sem geta lagt svo miklar fjárfestingar fram hefðu ekki eitthvað afgangs sem þær gætu lagt í rannsóknir eins og kynbætur og grunnrannsóknir. Ég tek undir það sem hv. 2. þm. Austurl. sagði um þessi efni og tel að það væri mjög mikilvægt að tekið væri á þessum málum í heild þannig að það yrði mótuð viðameiri og markvissari stefna í þessum málum.
Við sjáum í grg. að það er talið að útflutningur nemi um 600 millj. kr. á þessu ári. Það er vafalaust ekki nema brot af því sem verður þannig að það mætti vel ímynda sér að útflutningsfyrirtækin sameinuðust um að gera slíkar kynbætur.
Þær rannsóknir sem hér hafa farið fram á lífríki og þeim þáttum sem að því snúa eru tiltölulega litlar og því full þörf á því að menn snúi sér að þeim málum einnig.
Ég vil svo að lokum þakka flm. fyrir þessa ágætu till. og lýsi yfir stuðningi mínum við hana.