02.05.1988
Sameinað þing: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7175 í B-deild Alþingistíðinda. (5198)

Plútóníumflutningar í grennd við Ísland

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég held að fsp. hv. 2. þm. Austurl. sé fullkomlega réttmæt og tímabær því fréttin um umrætt flug vakti ótta með þjóðinni. Því var svar hæstv. forsrh. til að róa landsmenn og ég treysti fullkomlega íslensku ríkisstjórninni til að verja réttindi og aðra hagsmuni Íslands þegar slíkur ótti er vakinn með þjóðinni. Ég lýsi fullkomlega stuðningi við svar hæstv. forsrh.