02.05.1988
Sameinað þing: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7176 í B-deild Alþingistíðinda. (5201)

Plútóníumflutningar í grennd við Ísland

Forsætisráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég þakka þann almenna skilning sem fram kemur í ræðum hv. þm. á þeim mikilvægu hagsmunum sem hér eru í húfi og endurtek að ríkisstjórnin mun fyrir sitt leyti gæta hagsmuna Íslands svo sem frekast er kostur í þessum efnum. Varðandi fsp. þess efnis hvort ég muni í væntanlegum viðræðum mínum við ráðamenn Bandaríkjanna taka þetta mál upp er því fljótsvarað að ég geri ráð fyrir því að gera bandarísku ríkisstjórninni grein fyrir okkar afstöðu í þessu efni.