02.05.1988
Efri deild: 85. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7178 í B-deild Alþingistíðinda. (5210)

214. mál, Innheimtustofnun sveitarfélaga

Frsm. allshn. (Jóhann Einvarðsson):

Hæstv. forseti. Ég skal ekki vera langorður um þetta mál því það tengist máli sem er síðar á dagskránni, frv. til laga um fangelsi og fangavist. Allshn. hefur rætt frv. og mælir með samþykkt þess og undir það skrifa allir nefndarmenn.

Ég held ég hafi ekkert fleiri orð um þetta núna. Ég ræði það frekar með frv. um fangelsi hér á eftir.