04.05.1988
Efri deild: 87. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7277 í B-deild Alþingistíðinda. (5305)

Forgangsröð mála

Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):

Nú verða beiðnir margar um þingskapaumræðu, en ég vil þó vekja athygli hv. þingdeildarmanna á því að áðan var forsetafundur, þar sem lögð voru einhver drög að vinnubrögðum og þinghaldi í dag. Þess vegna væri kannski skynsamlegt að skilaboð um þann fund eða af þeim fundi kæmust til allra þingdeildarmanna.