04.05.1988
Efri deild: 87. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7303 í B-deild Alþingistíðinda. (5332)

228. mál, framleiðsla og sala á búvörum

Egill Jónsson:

Herra forseti. Með því að till. felur í sér ótvíræða niðurstöðu í þessu máli sem tryggir að fullu þau markmið sem fólust í því frv. sem ég flutti til breytinga á búvörulögunum og þar með liggur fyrir fullur árangur af þeim tillöguflutningi segi ég já.