04.05.1988
Neðri deild: 89. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7378 í B-deild Alþingistíðinda. (5372)

Tilhögun þingfundar

Forseti (Jón Kristjánsson):

Ég vil geta þess í sambandi við fundahöld í dag að ætlunin er að halda áfram til kl. 4 eins og hefðbundið er og hefja síðan fund aftur kl. 5.30. Ef á þarf að halda til að klára þau verkefni sem fyrir deildinni liggja í dag verður kvöldfundur, en við sjáum, áður en það verður ákveðið, hvernig okkur vinnst með þá dagskrá sem fyrir liggur.