04.05.1988
Neðri deild: 90. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7394 í B-deild Alþingistíðinda. (5431)
403. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingar á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda. Nauðsyn þessa frv. stafar af því að gera þarf nokkrar breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda til samræmis við efnislegar breytingar sem fram koma í frv. til l. um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem hæstv. félmrh. mælti fyrir á undan.
Frv. gerir ráð fyrir að ákvörðun um innheimtuhlutfall útsvars verði byggð á ákvörðunum sveitarfélaga um það hvaða útsvarsprósentu þau ætta í reynd að nota á viðkomandi staðgreiðsluári. Innheimtuhlutfall útsvars í staðgreiðslu verður þannig vegið meðaltal af ákvörðunum allra sveitarfélaga á landinu um útsvarsálagningu í hverju sveitarfélagi. Samkvæmt þessu er innheimtuhlutfall útsvars í staðgreiðslu hið sama á öllu landinu. Hins vegar munu skil á bráðabirgðagreiðslu útsvars til sveitarfélaga verða miðuð við þann hundraðshluta sem sveitarstjórn hefur ákveðið að verði álagningarhlutfall útsvars í sveitarfélögum.
Herra forseti. Þótt hér sé vissulega um fjárhagsmálefni, skattamál, að ræða og ætti þess vegna að vísa til hv. fjh.- og viðskn. tel ég þessu sinni rétt eðli málsins samkvæmt, þar sem þessi tvö mál ber að skoða í samhengi og þau eru innbyrðis nátengd, að vísa þessu máli að lokinni þessari umræðu til hv. félmn. og 2. umr.