15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (55)

16. mál, kostnaður við byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríksson

Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins benda á að hér er beiðni um skýrslu til fjmrh. um útgjöld vegna kostnaðar við byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, en ég hygg að mál þetta heyri undir utanrrh. og þess vegna sé ekki rétt að þessari beiðni staðið og er e.t.v. rétt að taka það til frekari athugunar áður en gengið er frá málinu hér í sameinuðu þingi.