05.05.1988
Neðri deild: 92. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7587 í B-deild Alþingistíðinda. (5631)

360. mál, umferðarlög

Eggert Haukdal:

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu. Ég kem hér aðeins upp til þess að lýsa stuðningi við sjónarmið hv. 1. þm. Norðurl. v. um að 2. gr. frv. nái ekki fram að ganga. Ég styð einnig sjónarmið tveggja síðustu ræðumanna um 3. gr. og þegar þetta er lagt saman er eðlilegt að við frestum afgreiðslu frv. Ég sem sagt undirstrika sjónarmið hv. þm. varðandi málið.