07.05.1988
Sameinað þing: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7725 í B-deild Alþingistíðinda. (5811)

465. mál, flugmálaáætlun 1988--1991

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Stuðningur minn við þessa till. til þál. um flugmálaáætlun er með þeim fyrirvara að í stuðningi mínum felst ekki að ég samþykki þá flokkun flugvalla sem tillagan gerir ráð fyrir. Ég hef áður í umræðum gert grein fyrir afstöðu minni til þess máls og vísa ég til þingtíðinda í því sambandi, en segi já að höfðum þessum fyrirvara.