07.05.1988
Sameinað þing: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7726 í B-deild Alþingistíðinda. (5815)

465. mál, flugmálaáætlun 1988--1991

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Mér þykir einkar ánægjulegt að hér skuli koma til samþykktar flugmálaáætlun. Við þm. Alþfl. fluttum um það tillögur um langt árabil að slíkar flugmálaáætlanir skyldu samdar. Auðvitað er hún ekki fullkomin frekar en önnur mannanna verk en ég læt í ljós ánægju mína með að nú skulu samdar flugmálaáætlanir og segi já.