09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7756 í B-deild Alþingistíðinda. (5846)
Efnahagsráðstafanir
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. var spurður tveggja spurninga. Hann var spurður að því í fyrsta lagi hvort til stæði á næstu vikum að ákveða hér efnahagsaðgerðir og í öðru lagi hvort hann ætlaði í ljósi þess að senda þingið heim á næstu dögum eða viðhafa þá sjálfsögðu lýðræðislegu reglu að láta þingið fjalla um stórlega mikilvægar ákvarðanir í efnahagsmálum. Ég vil leyfa mér að vekja á því athygli að forsrh. hefur alls ekki svarað þessum spurningum. Hann virðist ætla að reyna að lauma sér út úr þessari umræðu án þess að svara því sem hann er spurður um. Hann segir að vísu að þingslit séu ráðgerð í þessari viku og að vandamálin séu stór. Annað segir hann ekki.
Ég ítreka það að við hér í þinginu eigum heimtingu á að fá svör við þessum spurningum og ég segi það alveg eins og er, það er ekki Alþingi bjóðandi að vera hér með einhverja flugeldasýningu, einhver ómerkileg skot í garð stjórnarandstæðinga til þess að leiða athyglina frá því að hann hefur ekki svarað spurningunni. Auðvitað er það ekkert annað en flugeldasýning að vera að tala um það að Alþb. vilji reka ríkissjóð með halla og hafi flutt tillögur við afgreiðslu fjárlaga um útgjöld og annað þess háttar. Ef hann skoðar tillögusmíð okkar frá því í vetur og reyndar frá undanförnum árum, þá mun hann sjá það að við höfum ævinlega komið með tillögur um tekjur í staðinn fyrir þau útgjöld sem gerðar hafa verið tillögur um. Þetta mál snýst reyndar heldur ekkert um það hvort það verður mikil eða lítil gengisfelling á næstu dögum og hverjir standa með því og hverjir ekki. Ég vil í því sambandi leggja á það áherslu að það er almennt viðurkennt að launakjör í landinu eru í lágmarki og að það er auðvitað fásinna að það sé þörf á því að skerða launakjör hinna lægst launuðu. Og það er að sjálfsögðu stefna Alþb.
En spurningin sem er lögð fyrir hæstv. forsrh. snýst hins vegar alls ekki um þetta heldur um hitt hvort hann ætlar að sýna þinginu þá lítilsvirðingu á næstu vikum að senda það heim og koma svo með efnahagsráðstafanir fáeinum dögum seinna eða hvort hann ætlar að virða þingræði í landinu og gera tillögur um efnahagsaðgerðir þannig að þingheimur hafi tækifæri til að ræða þær eða taka afstöðu til þeirra.