09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7760 í B-deild Alþingistíðinda. (5853)

23. mál, einnota umbúðir

Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson):

Hæstv. forseti. Fyrir liggur á þskj. 958 svohljóðandi nál. frá allshn. um till. til þál. um einnota umbúðir:

„Nefndin hefur fjallað um þáltill. á fundum sínum. Umsagnir hafa borist frá eftirtöldum aðilum: Náttúruverndarráði, Hollustuvernd ríkisins, Landvernd, Ferðamálaráði Íslands, Neytendasamtökunum, Vífilfelli hf. og Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni.

Nefndin er sammála um að mæla með samþykkt tillögunnar.

Sverrir Hermannsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.“

Undir nál. skrifa Guðni Ágústsson, Kristín Halldórsdóttir, Jón Kristjánsson, Guðrún Helgadóttir, Sigbjörn Gunnarsson og Pálmi Jónsson.