09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7760 í B-deild Alþingistíðinda. (5854)

23. mál, einnota umbúðir

Kristín Einarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil aðeins koma hér fyrir hönd flm. til að lýsa ánægju minni með að till. þessi er komin aftur til þingsins og vil þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu á henni. Ég efast ekki um að till. fær hér góðar viðtökur, en mestu máli skiptir þó að þetta mál verði tekið föstum tökum af framkvæmdarvaldinu.