09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7764 í B-deild Alþingistíðinda. (5866)
32. mál, símar í bifreiðum
Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Á þskj. 1043 er nál. allshn. um þáltill. um notkun síma í bifreiðum. Það hljóðar svo: „Nefndin hefur rætt þáltill. á fundum sínum.
Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum: Umferðarráði, Póst- og símamálastofnuninni, lögreglustjóranum í Reykjavík, Bandalagi íslenskra leigubílstjóra, Ökukennarafélagi Íslands.
Nefndin leggur til að þáltill. verði samþykkt með svohljóðandi breytingu:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir því að settar verði almennar reglur um notkun farsíma í ökutækjum hér á landi og þær kynntar ökumönnum og við ökukennslu.
Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Kristín Halldórsdóttir og Pálmi Jónsson.“
Undir þetta nál. skrifa Guðni Ágústsson, Sverrir Hermannsson, Guðrún Helgadóttir, Sigbjörn Gunnarsson og Jón Kristjánsson.