09.05.1988
Efri deild: 95. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7777 í B-deild Alþingistíðinda. (5902)

126. mál, mat á sláturafurðum

Frsm. landbn. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Landbn. Ed. hefur rætt þetta mál á fundi sínum og leggur til eins og nál. ber með sér að það verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Nd. Alþingis.

Tveir nefndarmenn, Danfríður Skarphéðinsdóttir og Skúli Alexandersson, skrifa undir afgreiðslu nefndarinnar með fyrirvara, en að öðru leyti er nefndin sammála um afgreiðslu málsins.