09.05.1988
Neðri deild: 97. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7809 í B-deild Alþingistíðinda. (5947)

433. mál, sala fasteigna Grænmetisverslunar landbúnaðarins

Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað frv. til l. um heimild fyrir fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs að selja fasteignir Grænmetisverslunar landbúnaðarins að Síðumúla 34 og jarðhús í Ártúnsbrekku við Elliðaár. Nefndin hefur eftir athugun þessa mælt með samþykkt þess á grundvelli kaupsamnings, sem dagsettur var 29. júlí 1986, um fasteignir Grænmetisverslunar landbúnaðarins milli ríkisstjórnarinnar og Sölusamtaka íslenskra matjurtaframleiðenda.

Undir þetta skrifa allir nefndarmenn.