09.05.1988
Neðri deild: 99. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7847 í B-deild Alþingistíðinda. (5976)
514. mál, bann gegn viðskiptum við Suður-Afríku og Namibíu
Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Hv. Ed. gerði þá breytingu á frv. til laga um viðskiptabann á Suður-Afríku og Namibíu að lengja frestinn, þ.e. færa gildistökuna aftur til áramóta. Var það gert vegna viðskiptasamninga sem fyrirtæki hér hafa þegar gert. Breytingin var borin undir nm. í Nd. Við setjum okkur ekki upp á móti því og mælum með að frv. verði samþykkt eins og Ed. gekk frá því.