09.05.1988
Neðri deild: 99. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7847 í B-deild Alþingistíðinda. (5978)
454. mál, viðskiptabankar
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. 2. þm. Vestf. fyrir að hafa leyft mér að koma í ræðustól án þess að hann hafi lokið sinni ræðu, en hann lauk henni þar sem hann lýsti Kolbeini unga sem þeim eina sem óháður var erlendu auðvaldi á þeirri tíð og var auk þess kominn á bls. 35 í merkri bók um sögu Íslandsbanka og Útvegsbankans.
Ég vonast til þess að það sem ég hef nú að segja, sem verður ekki langt mál, geti orðið til þess að stytta umræður um þetta mál og greiða fyrir farsælli niðurstöðu í því. En það er í sem skemmstu máli það að mér virtist af máli þeirra sem töluðu við þann hluta umræðunnar sem þegar hefur farið fram að það væri býsna víðtækur stuðningur við 2.–5. gr. þessa frv., um viðskiptabankana, og þar með reyndar einnig efnislega við frv. um sparisjóði. En þessi efnisákvæði lúta að reglum um stóra lántakendur, um ábyrgð bankaráða á ákvörðunum um það málefni og um eftirlit Bankaeftirlitsins með slíkum reglum og um óháðar ákvarðanir í bankaráðunum. Einnig um það að Ríkisendurskoðun komi í stað þingkjörinna endurskoðenda og loks að stefnt skuli að sígandi aðlögun að ákvæðum viðskiptabanka- og sparisjóðalaga um hámarkshlutfall fastafjármuna og búnaðar af eiginfjármunum bankanna. Ég beini því til þingdeildarinnar og til hv. fjh.- og viðskn. að freista þess að ná samstöðu um þessi fjögur efnisatriði. Um efnisatriði 1. gr., þ.e. um heimild fyrir erlenda banka og viðurkenndar fjármálastofnanir að eiga allt að fjórðungi í íslenskum hlutafjárbönkum, hef ég það að segja að ég tel á margan hátt eðlilegt að ákvörðun um það mál verði tekin í samhengi við ákvarðanir þingsins á grundvelli frv. um erlenda fjárfestingu í atvinnurekstri á Íslandi sem hæstv.
forsrh. hefur kynnt þinginu, en ekki mun tekið til afgreiðslu á þessu þingi. Í því frv. eru einmitt ákvæði sama efnis og að sömu hlutfallstöluheimild er stefnt, eins og hér var fest á blað í bankalagafrv., og það mætti vel hugsa sér að taka samtímis ákvörðun um það allt. Ég vona að hin atriðin fjögur gætu orðið til að bæta búskaparlagið í bönkum og sparisjóðum, en það frv. er þegar hjá hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar.
Hæstv. forseti, þessu vildi ég koma á framfæri áður en umræðunni er fram haldið en er að sjálfsögðu tilbúinn til að taka þátt í henni eins og þingdeildin óskar.