10.05.1988
Neðri deild: 100. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7858 í B-deild Alþingistíðinda. (5999)

360. mál, umferðarlög

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég tel óeðlilegt að fara að fela hlutafélagi skoðun bifreiða og önnur þau verkefni sem 3. gr. gerir ráð fyrir. Ég tel einnig að engan veginn sé þannig um hnútana búið að eðlilega verði staðið að skoðun bifreiða út um landið og því segi ég nei.