10.05.1988
Neðri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7864 í B-deild Alþingistíðinda. (6021)

431. mál, virðisaukaskattur

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Mér er ekki kunnugt um að það hafi verið dreift nál. minni hl. Það er alla vega ljóst að það verður ekki mælt fyrir því fyrr en búið er að dreifa því. Ég hlýt því að fara fram á að það verði kannað áður en gengið verður til umræðunnar.