10.05.1988
Neðri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7915 í B-deild Alþingistíðinda. (6041)

431. mál, virðisaukaskattur

Guðni Ágústsson:

Herra forseti. Ég játa að meðferð þessa máls er vægast sagt einkennileg. Að vísa nýsettum lögum í milliþinganefnd þingmanna og embættismanna telst varla þingleg meðferð. Þar skal deilt um margar stórpólitískar ákvarðanir. En í trausti þess að þingflokkar fái að fylgjast grannt með starfi milliþinganefndarinnar og málið komi á ný til umfjöllunar á haustdögum segi ég já.