10.05.1988
Neðri deild: 102. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7932 í B-deild Alþingistíðinda. (6069)

466. mál, ferðamál

Guðrún Helgadóttir:

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða frv. sem ég lýsti fyrr í kvöld hvers vegna ég sé enga ástæðu til að samþykkja. Vinnsla þess hér í þinginu er ekkert minna en hneyksli. Ég sé enga ástæðu til, þó að undarleg vinnubrögð hafi upphafist hér á hinu háa Alþingi, að samþykkja brtt. við frv, sem ég er mótfallin. Ég segi því að sjálfsögðu nei.