11.05.1988
Efri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7971 í B-deild Alþingistíðinda. (6179)

Starfslok efri deildar

Guðrún Agnarsdóttir:

Hæstv. forseti. Fyrir hönd okkar þingmanna í Ed. vil ég þakka hæstv. forseta hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég þakka honum vinsamlega og réttláta fundarstjórn í vetur og óska honum og fjölskyldu hans gleðilegs sumars.

Enn fremur vil ég þakka skrifstofustjóra og öllu starfsliði Alþingis fyrir mikil og vel unnin störf í önnum þingsins. Ég óska þeim gleðilegs sumars og vona að við hittumst öll heil að hausti.

Síðan vil ég biðja hv. þingdeildarmenn að rísa úr sætum til að taka undir þessi orð. - [Deildarmenn risu úr sætum.]