11.05.1988
Sameinað þing: 85. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7975 í B-deild Alþingistíðinda. (6186)

Þinglausnir

Steingrímur J. Sigfússon:

Fyrir hönd okkar alþm. vil ég þakka hæstv. forseta hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég þakka honum og fyrir ágæta og réttláta fundarstjórn og góða forustu um þingstörfin. Ég óska honum og fjölskyldu hans alls hins besta á þessu sumri og ég vil leyfa mér að vænta þess að við megum öll hittast heil til starfa á komandi þingi.

Ég vil biðja hv. alþm. að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. - [Þingmenn risu úr sætum.]