16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 981 í B-deild Alþingistíðinda. (645)

103. mál, samgöngur á Austurlandi

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það hefur ekki reynt á hvort langan tíma tæki að ljúka hér umræðu um 4. dagskrármálið og mér finnst eðlilegt að freista þess að málinu megi ljúka þannig að þeir þm. sem eru á mælendaskrá geti talað í beinu samhengi en komi ekki eins og álfur út úr hól einhvern tímann síðar.