18.11.1987
Neðri deild: 13. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (700)
75. mál, jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla
Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég hef ekki rétt nema til örstuttrar athugasemdar þar sem ég hef talað þrisvar við umræðuna, en ég þakka fyrir að fá orðið. Ég vil aðeins segja það vegna þeirrar ræðu sem hér var flutt áðan að það hlýtur að vera mjög verðmætt fyrir Alþingi og reyndar þjóðina að lýst sé inn í þann hugarheim sem birtist í orðum hv. þm. Ólafs Þ. Þórðarsonar.