23.11.1987
Sameinað þing: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Guðni Ágústsson):

Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað það kjörbréf sem vísað var til hennar, sem er kjörbréf Finns Ingólfssonar, 1. varaþm. Framsfl. í Reykjavík. Jafnframt hefur nefndinni borist bréf Guðmundar G. Þórarinssonar, 10. þm. Reykv., sem er á förum til útlanda í opinberum erindum.

Kjörbréfanefnd var sammála um að mæla með því að kjörbréf Finns Ingólfssonar verði tekið gilt.