23.11.1987
Sameinað þing: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1141 í B-deild Alþingistíðinda. (755)

Kosning í stjórnir, nefndir, ráð o.fl.

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir það svar sem hæstv. forseti hefur gefið. Það er fullnægjandi. Ég vek athygli á því að það er stjórnarliðið sjálft sem ekki getur staðið við að afgreiða málin þegar stjórnarandstaðan er beðin um að hraða afgreiðslum.