23.11.1987
Sameinað þing: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í B-deild Alþingistíðinda. (759)

107. mál, lýsing á Suðurlandsvegi um Hellisheiði

Flm. (Eggert Haukdal):

Herra forseti. Ég þakka undirtektir og vil leggja áherslu á, sem kom ekki nógu skýrt fram í mínu máli, að til vegamála verður að koma aukið fé. Það er ekki meiningin með þessari till. að taka fé frá þeim þáttum sem að er unnið. Þess vegna verður ekki of oft lögð áhersla á það við gerð fjárlaga að það þarf stóraukið fé til vegamála í landinu.