24.11.1987
Neðri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (820)

42. mál, áfengislög

Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):

Af þessu tilefni vill forseti taka fram að sá ljóður var á hans ráðabreytni í lok reglulegs fundartíma þessarar hv. deildar, kl. 5, að honum láðist að tilkynna hversu langt væri ætlað að halda áfram fundi og það atriði gefur margnefndum hv. þm. óneitanlega þann rétt sem forseti vill alls ekki af honum taka.