26.11.1987
Sameinað þing: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1292 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

97. mál, úrgangsefni frá álverinu í Straumsvík

Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir):

Herra forseti. Aðeins örstutt athugasemd. Það hefur kannski ekki verið nógu skýrt hjá mér áðan, en áður fyrr var kerbrotunum hent á fjörur. Þá sást mengunin. Þá höfðu menn áhyggjur af því. Nú sést hún ekki lengur heldur fer sama mengun í sjóinn og ég hef ekkert síður áhyggjur af því. Það er fyrst og fremst það sem var e.t.v. ekki nógu skýrt hjá mér áðan.