15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (92)

Síðustu efnahagsákvarðanir ríkisstjórnarinnar

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Í framhaldi af orðum hv. 3. þm. Norðurl. e. þar sem hann lét þau orð falla í upphafi máls síns að frummælandi væri talsmaður stjórnarandstöðunnar vil ég upplýsa hv. þm. um að stjórnarandstaðan hafði ekki samráð um að hefja þessar umræður og upplýsingar um að þær mundu fara fram í dag komu til mín sem formanns Borgarafl. frá hæstv. forseta okkar sameinaða Alþingis. Þetta þykir mér rétt að komi fram til þess að það verði skráð á réttan hátt í bækur þingsins.