02.12.1987
Neðri deild: 16. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1407 í B-deild Alþingistíðinda. (992)
110. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að gera örstutta athugasemd við það frv. sem hér liggur fyrir og þá einkum grg. þess. Ég hef margsinnis lagt á það áherslu, þegar grg. með þingmáli er samin, að fram komi það sem áður hefur verið lagt til í sama máli þannig að þm., bæði þeir sem gleymnir kunna að vera og ekki síður þeir sem nýir koma til þings, hafi einhverja hugmynd um þróun málsins hér á þingi.
Hér segir í grg. hv. flm. að frv. þetta hafi verið lagt fram á síðasta þingi en ekki orðið útrætt og allt er það satt og rétt, en þar er ekki saga þessa máls öll.
Árið 1983–1984, á 106. löggjafarþingi, lagði hv. 1. þm. Norðurl. v., Páll Pétursson, fram till. til þál. um lífeyrisréttindi húsmæðra sem hljóðaði svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta semja frv. til l. um lífeyrissjóð fyrir þær húsmæður sem ekki hafa þegar öðlast rétt til aðildar að lífeyrissjóði,"
Síðan flutti hæstv. núv. félmrh. þingmál sama efnis og oftar en einu sinni og á síðasta þingi, svo að ég fari fljótt yfir sögu, var hún 1. flm., hv. þáv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, að till. til þál. um lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra. Síðan kom fram till. frá hv. þáv. þm. Gunnari G. Schram, sem var einnig till. til þál., um lífeyrisréttindi þeirra sem annast hjúkrunar- og líknarstörf, minnir mig að það hafi heitið. Báðum þessum málum var vísað til nefndar á síðasta þingi, til hv. félmn. Sþ., og frá nefndinni kom till. til þál. sem var samþykkt 19. mars 1987. Það var málamiðlun sem allir gátu sætt sig við, og var samþykkt sem þál. sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa tillögur um lífeyrisréttindi þeirra sem eingöngu sinna heimilis- og umönnunarstörfum og leggja þær fyrir Alþingi eigi síðar en 1. nóv. 1987.“
Þar með hefur Alþingi Íslendinga falið ríkisstjórninni að undirbúa frv. til l. um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks.
Mér þykir þess vegna það að þeirri vinnuaðferð sem hér er höfð í frammi, sem er að leggja fram frv., að eðlilegra hefði verið að spyrja hæstv. félmrh., sem er því miður ekki viðstödd í dag, hvort þessi vinna sé í undirbúningi, ekki síst með tilliti til þess að hún hefur marglagt fram tillögur í þessa átt. g held að það sé töluvert mikilvægt að þingið reyni að gera sér ekki erfiði umfram ástæðu. Sé félmrn. með þetta mál í undirbúningi tel ég að eðlilegast sé að fá við því svör frá hæstv. félmrh. fremur en að koma fram með frv. sem í raun og veru er þegar búið að samþykkja að verði samið af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Ég bendi á þetta vegna þess að við ræðuhöld í sambandi við þetta frv. hafa menn talað eins og Alþingi hafi hreint ekki komið nálægt þessum málum fyrr. Ég vil þess vegna benda mönnum á þál. síðasta þings og skora hér með á hæstv. félmrh. að vinda að því bráðan bug að undirbúa tillögur um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks. Hún getur það að vísu ekki, eins og ályktað var, fyrir 1. nóv. 1987, en því fyrr því betra sem hún gerir það. Má ætla að þær tillögur hljóti að sjá dagsins ljós.
Efnislega skal ég ekki fara út í frv., en vildi einungis benda á þetta.