20.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

4. mál, landsreikningurinn 1906-1907

Eiríkur Briem:

Mér þykir það fara ólaglega í frumv., þar sem stendur fyrst: »peningaforði landsjóðs 340068,29 kr.« og síðan stendur: »þar af«, og svo koma tvær upphæðir, sem samtals eru stærri en hin fyrsta. Þetta þykir mér óviðkunnanlegt, en hefi þó ekki álitið það svo mikilsvert að gera breyt.till. við það.