01.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í B-deild Alþingistíðinda. (1128)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Pétur Jónsson:
Háttv. framsm. (Sk. Th.) taldi rangt og villandi að segja, að símarnir væru arðberandi. Eg skal taka það fram, að þegar eg talaði um að símar væru arðberandi, þá átti eg ekki við, að símarnir allir í heild sinni borguðu sig alveg, heldur að hinir nýju símar, sem nú eru á fjárlagafrv. gerðu það nokkurnveginn að líkindum. Til símalagninga, nýrra, eru nú ætlaðar 83 þús. Ef þar við er bætt hinum fyrirhugaða Vestmannaeyjasíma, samkvæmt fyrirliggjandi breyt.till., sem ráðgert er að kosti rúm 34 þús. kr., er upphæðin alls um 117 þús. kr. Rentur og viðhaldskostnað mun mega telja um 6% af þessu eða um 7 þús. kr., og líklegt er að símarnir gefi það af sér. Þar að auki eru umbætur á eldri símum, er nema 136½ þús. kr. Eg skal ekki segja um, hvort þessar fjárveitingar mundu gefa af sér góða vexti, en allar eru þær nauðsynlegar. Eg fyrir mitt leyti hygg, að helzt mætti spara fjárveitingu til koparþráðar til Ísafjarðar, 68 þús. kr., þótt ilt væri.
Því, sem háttv. 2. þm. Húnv. (B. S.) veik að þm. S.-Þing. tel eg mér ekki skylt að svara.