29.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í B-deild Alþingistíðinda. (1146)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Jón Jónsson (N.-Múl.):
Eg er þakklátur hinum hæstv. ráðh. (B. J.) fyrir till. hans um 3000 kr. hvort árið til Fagradalsbrautarinnar, og 4000 kr. f. á. til Lagarfljótsbrúarvegarins. Er breyt.tillaga þessi bygð á tillögum verkfræðings landsins, enda er hún í alla staði réttmæt.
Af því að eg hefi orðið var við misskilning um Lagarfljótsbrúarveginn, vildi eg minnast á hann lítið eitt. Upphaflega var það meiningin, að brautin ætti að ná alla leið að Lagarfljótsbrú, en nú atvikaðist það einhvernveginn þannig, að vegalögin segja að brautin skuli lögð niður að fljótinu hjá Egilsstöðum. Það er alveg ljóst, að til þess að brúin geti komið að tilætluðum notum, þarf brautin að ná brúnni. Vegurinn frá Egilsstöðum að brúnni er vondur með köflum: kílar, mýrar og móar. Þetta er líka þjóðvegur. Má benda á, að verkfræðingur landsins hefir talið nauðsynlegt, að gera þjóðveginn frá Egilsstöðum að Jökulsá hjá Fossvöllum sem fyrst akfæran, því að fyr kæmi ekki Fagradalsbrautin að fullum notum.
Hér er ekki nema um litla fjárveitingu til allra nauðsynlegasta vegarkafla á þessari leið að ræða, og vona eg að háttv. þm. í þessari deild verði enn sem fyr svo sanngjarnir að samþykkja þessa fjárveitingu.
Eg hefði eigi búist við, að háttv. 2. þm. Reykvíkinga (M. B.) mundi koma með breyt.till. um að lækka svona mikið styrkinn til Eiðaskólans, þar sem hann var skólanum hlyntur áður. Nú eru skólanum ætlaðar í fjárlögunum að eins 1500 kr. hvort árið til reksturs. Áður, meðan búnaðarskólarnir voru 4, hafði þó Eiðaskóli 2500 kr. á ári, og þótti, sem var, sultarskamtur. Þá voru í skólanum þetta 610 nemendur og stundum færri. Nú eru þar um 20 námsmenn og verða vafalaust miklu fleiri úr þessu, eftir því sem húsrúm leyfir.
Hér er því alls ekki sanngjarnt í sakirnar farið við okkur Austfirðinga, heldur hangið í bókstaf bændaskólalaganna. En um þennan byggingarstyrk er það að segja, að hann er veittur í eitt skifti fyrir öll og brýtur því ekki bág við nein »princíp«. Eg skal játa, að 20,000 kr. er rausnarleg fjárveiting til byggingarinnar. En allir sjá, hve árstillagið er lítið og full þörf á að skólanum sé sýnd viðurkenning á einhvern hátt. Eg vona, að tillaga háttv. 2. þm. Rvk. (M. BJ verði feld.
Annars vildi eg óska þess, að hann tæki breyt.till. aftur.