17.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (1156)
2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909
Ráðherrann (H. H.):
Frumvarp þetta fer fram á viðbót við gjöld þau, sem tilfærð eru í fjárlögunum fyrir árin 190809, að upphæð 133,936 kr. 17 aurar. Þessi upphæð er aðallega ætluð til samgöngumála.
Meðal annars er ætlast til, að gerð verði brú á Ytri-Rangá í Rangárvallasýslu nú í sumar. Eins og menn muna var það að eins ágreiningur um brúarstæðið, sem var þess valdandi, að brúin var ekki sett á núgildandi fjárlög, en annars kemur flestum saman um, að brú þessi vegna umferðar og flutningsvegar eigi eðlilega rétt til þess, að verða næst í röðinni af hinum stærri brúm. Næst ætti svo brúin á Norðurá í Borgarfirði að koma árið 1910.
Enn fremur ber brýna nauðsyn til, að bættar verði samgöngurnar á sjó milli Hornafjarðar og annara hafna, til þess að suðurhluti landsins verði ekki jafn afskiftur í þeim efnum og verið hefir. Þetta þyrfti að komast í framkvæmd sem fyrst, helzt þetta ár, og er því lagt til, að bæta við upphæð þá, sem á fjárlögunum stendur, en ónóg hefir reynst, svo miklu, að víst megi telja, að bátur fáist.
Þá er lagt til, að láta ekki lengur bíða, að leggja talsíma til Vestmannaeyja í sambandi við Ægissíðuálmuna, sem nú vonandi ekki dregst lengur, en til næsta vors. Það er nauðsynlegt að hraða Vestmannaeyjasímanum bæði vegna eyjaskeggja sjálfra og svo vegna landsins í heild sinni. Bæði fiskiveiðar og aðrar siglingar sunnanlands mundu hafa af því hinn mesta hag, eins og sýnt er fram á í ástæðum frumv.
Með því að reynslan hefir sýnt, að gott talsímasamband má fá á eigi lengri vegi, en hér er um að ræða, með járnþræði, sem er miklu ódýrari en koparþráður, þá má spara 10,000 krónur á álmunni austur í sýslur (Árnessýslu og Rangárvallasýslu) með því að nota tvöfaldan, gildan járnþráð í stað koparþráðs þess, sem fé er veitt til í núgildandi fjárlögum. Er lagt til, að sparnaðurinn verði látinn koma sýslunum, er hlut eiga að máli, til hagnaðar, þannig, að tillagið frá sýslufélögunum færist niður um þá upphæð. Frá Árnessýslu verður tillagið þá að eins 6,000 kr. til línunnar, ásamt aukalínu til Eyrarbakka og Stokkseyrar, og er það minni upphæð, en sýslan mundi þurfa að greiða til þeirrar aukalínu frá Selfossi, ef landið legði símann austur tillagslaust. En með því að greiða þessa upphæð, sem tillag til landsímalagningar í stað þess að byggja »privat« sýslu-álmur til kauptúnanna, þá sparast notendum aukagjald fyrir hvert símskeyti, sem mundi verða mjög óvinsælt og tilfinnanlegt. Það þykir því engin ástæða til að ætla, að sýslunefndin færist lengur undan þessu litla tillagi, en eg vil þó benda á það, að væntanleg fjárlaganefnd ætti að bera sig saman við hlutaðeigandi sýslunefndir um þetta mál sem fyrst.
Við lagning Vestfjarðaálmunnar og annara símalagninga í sumar sparaðist 50,000 kr. Af því fé er lagt til, að varið verði 36,000 kr. til þess að innleysa Eskifjarðarálmuna, sem er eign stórkaupm. Thor E. Tuliniusar. Með þessu yrði létt aukagjöldum af sýslubúum og sambandið gert einfaldara og notasælla, eins og nákvæmlega er útlistað í athugasemdunum við frumv.
Um önnur atriði læt eg mér nægja að skírskota til hinna prentuðu athugasemda, sem frumvarpinu fylgja, og vona eg, að þar sé nægilega sýnt, að hinu opinbera ætti að vera hagnaður að því, að framkvæmdum þeim, sem frumv. fer fram á, sé hraðað sem mest og lokið þegar á þessu ári.
Fel eg því næst háttv. þingdeild frv. þetta með meðmælum mínum.