01.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (1326)

6. mál, aðflutningsgjald

Forseti (H. Þ.):

Eg tel fullkomlega löglegt að bera upp þessa breyt.till. og er skilningur hv. þm. Vestm. (J. M.) á 30. gr. þingskapanna í sambandi við þessa breyt.till. ekki réttur, því að svona löguð breyt.till. hefir aldrei verið feld hér í deildinni, og skoðast hún sem viðaukatill. við frv. Það kemur því ekki til nokkurra mála að vísa henni frá.