29.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (1381)

13. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum

Framsögumaður (Hálfdan Guðjónsson):

Eg get sagt hið sama um þetta frumv. og það, sem deildin einmitt á þessari stundu gerði að lögum, að breytingarnar frá háttv. Ed. eru svo litlar, að þeirra gætir naumast, og því engin ástæða til að láta þetta frumv. hrekjast milli deildanna þeirra vegna.