05.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)
14. mál, meðferð skóga, kjarrs o. fl.
Sigurður Gunnarsson:
Mér virðist að ekki geti komið til mála að ræða um annað en hin almennu atriði frv. við þessa umr. Stefna frv. er rétt og góð, og eg er samþ. hæstv. ráðh.
um, að tími sé kominn til þess, að vernda gróður landsins, smáskóga og lyng, og það er skylda þingsins að leggja rækt við málið. Á hvern hátt að frv. nær bezt tilgangi sínum, verður ljósast, þegar farið er að ræða hin einstöku atriði þess. Eg er á sama máli og hinn háttv. þm. S.-Þing. (P. J.), að réttast sé að vísa málinu til landbúnaðarnefndarinnar.